|
17.04.2009 15:06:05 / gaggo
Já sumarið er tíminn sungu Bubbi og Rúnar Júll í GCD á sínum tíma. Hér eru greinilega allir hættir að kíkja inn og skrifa eitthvað en ég gefst ekki upp þó á móti blási.  hehehehe En takk fyrir veturinn og Gleðilegt sumar.....Vonandi verður einhver hittingur því það er svo gaman þegar við hittumst. Knús, knús til ykkar allra. KV. Kristín.
»
27.01.2009 15:27:06 / gaggo
Gleðilegt nýtt ár!!!!!!!!! OG INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ 30 ÁRIN ÞIÐ SEM ERUÐ BÚIN OG ÞIÐ SEM EIGIÐ ÞAÐ EFTIR. NJÓTUM OKKAR VEL Á ÞESSUM FRÁBÆRU TÍMAMÓTUM AÐ VERA SVONA ÆÐISLEGA FLOTT OG UNGLEG OG AÐ ÞESSI TALA TILHEYRI OKKUR. knús og kossar
»
28.09.2008 23:12:06 / gaggo
SAUÐAMESSA VERÐUR HALDIN Í BORGARNESI ÞANN 4 OKTÓBER OG HVET ÉG ALLA TIL AÐ MÆTA OG NJÓTA ÞESS AÐ SÝNA SIG OG SJÁ AÐRA. SÍÐASTA NEFND SEM SKIPULAGÐI BEKKJARMÓT MEÐ LITLUM FYRIRVARA ER Í STUÐI OG ÆTLAR SÉR NÚ AFTUR AÐ KALLA Á OKKUR Í ÁRGANGI 79 SAMAN Í HITTING. stefnt er að hittast heima hjá Halla um átta leytið, borða kjötsúpu, drekka bjór eða aðra drykki og njóta samvista hvors annars. ÉG VONA AÐ SEM FLESTIR SJÁI SÉR FÆRT AÐ MÆTA. ENDILEGA HAFIÐ SAMBAND VIÐ HALLA EF ÞAÐ ERU EINHVERJAR SPURNINGAR. Kv, Kristín Þuríðardóttir.
»
15.07.2008 23:11:07 / gaggo
Já sumarið 2008 er á blússandi siglingu og vonandi erum við að njóta þess í botn. Minn kæri frændi Ragnar lagði af staði í fyrradag til sinnar heittelskuðu í Mexíkó þar sem hann mun giftast henni 2 ágúst. Þakka gott boð í leiðinni en ætla mér helst að vera upptekinn með litla bumbubúan minn ef hann vill einhverntímann mæta í heiminn. ( Já ég er pínu spennt  ) Ég ætla mér hinsvegar að komast í brúðkaupið hennar Huldu Geirs sem verður um miðjan ágúst.Sólin hefur leikið við okkur hér í Borgarnesi og var það kærkomið að fá smá rigningu núna í vikunni og ferska golu inn um svefnherbergisgluggann á nóttunni. FACEBOOK er það sem er inn í dag og hvet ég alla sem ekki hafa skráð sig þar inn að gera það því þar finnur þú gamlan vin aftur eftir langan aðskilnað. Annars var það bara ég sem var komin með fráhvarseinkinn á að blaðra hér og hef fengið nægju mína í bili. Knús og kossar í bili. Kristín Þuríðardóttir.
»
14.06.2008 23:19:52 / gaggo
Ég vil þakka fyrir hönd nefndarinnar þá fáu en góðu sem sáu sér fært að mæta í dag í Skalló í 15 ára fermingarafmælispartýið með börn og buru. Veðrið lék við okkur og var glampasól allan tímann. Mafían bauð upp á pylsur, gos, svala og sætt í eftirrétt fyrir unga sem aldna...hehehe. En einhver umræða fór af stað með að við þyrftum að eiga einhversstaðar netfangalista sem væri uppfærður reglulega þannig að auðveldara væri að hóa alla saman. Þetta er svo svakaleg tækniöld að það ætti að vera lítið mál að ná í alla til að segja frá svona hittingi. En þar sem undirrituð kann lítið annað en að blaðra hér á bloggsíðunni þá mæli ég með að einhver bjóði sig fram í að halda utan um þetta. Svo er bara spurning hvort stefnan sé tekin á Sauðamessuna í Borgarnesi þann 30 ágúst(held ég) og þá verði aftur hittingur og að fleiri sjái sér fært um að mæta.
EN YNDISLEGT AÐ HITTA ÞÁ SEM KOMU OG FÁ AÐ SJÁ BÖRN OG HEYRA FRÉTTIR AF FÓLKI. KNÚS, KNÚS FYRIR FRÁBÆRA STUND.
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIN FINNUR OG LILJA.
Kv, Kristín Þuríðar.
»
30.05.2008 00:21:13 / gaggo
Sælir kæru bekkjarfélagar!!!
Í ár verður haldin svaklegur hittingur þann 14 júní næstkomandi í Skallagrímsgarði (Afmælisdagur Finns og Lilju). Planið er að hittast um daginn og grilla saman ýmist pylsur eða annað góðgæti sem fólki langar í og drekka eitthvað svalandi og gott með. Vill nefndin koma því á framfæri að með þessu boði er verið að bjóða bekkjarfélugum og börnum þeirra. Gaman væri að sjá sem flesta og sérstaklega börnin. Nánari upplýsingar koma síðar. ENDILEGA LÁTIÐ BOÐIÐ BERAST Á MILLI VINA ÞVÍ ÞAÐ ERU SVO MARGIR SEM EKKI FYLGJAST MEÐ Á ÞESSARI SÍÐU.
Með kveðju, nefndin sem mun koma skemmtilega á óvart.
»
15.05.2008 00:24:11 / gaggo
Hæ hæ allir saman. Vildi bara óska ykkur öllum gleðilegs sumars. Það er búið að vera svo geggjað veður að maður fær bara fiðring um sig. Yndislegt. Njótið ykkar vel í sumar á Íslandi eða einhversstaðar annarsstaðar í heiminum. Sumarsólarknús til allra. Kv. Kristín bumbulína.
»
09.04.2008 00:00:56 / gaggo
Já í dag eru 15 ár síðan við fermdust. TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ ALLIR SAMAN.
Það er sko ótrúlegt að það séu 15 ár síðan en þetta er sannleikurinn. Ég man hvað ég varð svakalega fullorðin þennan dag og það var ekkert í heiminum sem gat talið mér trú um annað. Eignaðist kærasta sama kvöld sem var sko 4 árum eldri og var úti allar nætur í partýinum og skemmtilegheitum. Ó guð á himnum hvað maður var lítil og vitlaus. Margt hef ég lært síðan en þetta var yndislegur tími sem ég naut í botn. Vonandi voru margir sem mundu eftir þessum degi. Knús og kossar, Kristín litla afmælisstelpa.
»
30.01.2008 15:06:09 / gaggo
Sá að Ásý var að tala um leynibumbu og hér með óska ég eftir því að þú sem ert ólétt blaðrir því þegar tími er komin. Annars er það ekki leyndó að ég á von á mér þann 16 júlí og er það mitt 3 barn. Margrét Jónmundsdóttir eignaðist strák núna fyrir stuttu og óska ég henni til hamingju með það. Inga Birna gifti sig núna 26 janúar og skírði strákinn sinn Ólaf Már. Til hamingju með það. Verum endilega dugleg að skrifa inn smá upplýsingar um hvort annað hér inni til að fylgjast aðeins með. En viljið þið aðeins hjálpa mér???? Viljið þið senda mér emailin ykkar á mitt email og biðja fólk um að gera það sem er lítið eða ekkert að skoða þessa síðu. Kv. Kristín bumbulína.
»
15.01.2008 23:42:35 / gaggo
Nú segji ég STOPP. Þegar ég kíkti inn núna í kvöld voru 9 búnir að kíkja á þessa síðu en ekki einn einasti búin að skrifa í gestabókina eða í comment. Þetta gengur auðvita alls ekki. Ef einhver á að nenna að skipuleggja fermingarmót eða aðra hittinga sem flestir vilja held ég hafa þá verðum við að vera dugleg að hafa smá samskipti hér. En ef að ég er bara ein um þetta og er kannski bara að gera þetta fyrir sjálfa mig þá er nú alveg spurning um að koma sér bara upp sinni eigin síðu og hætta að babla hér eins og bjáni. Fyrsta nöldrið og skammirnar komnar á nýju ári Þið eruð yndisleg og helst af öllu vil ég hafa kraft hér á síðunni. Kv. Kristín.
»
26.12.2007 17:44:56 / gaggo
GLEÐILEG JÓL ELSKU GÖMLU BEKKJARFÉLAGAR. Vonandi var árið hjá ykkur ánægjulegt og gott. Hjá mér var það yndislegt. Flutti aftur í heimabæin okkar og uni mér vel þar með stórfjölskyldunni minni. Sérstaklega núna í öllum snjónum að draga syni mína á mínar gömlu slóðir. Njótið ykkar vel yfir hátíðirnar og á nýju ári. Á nýju ári eigum við 15 ára fermingarafmæli og þá verða nú einhverjar dýrðir og dásemdir. Hlakka til að hitta ykkur. Knús og kossar Kristín.
»
20.11.2007 15:42:15 / gaggo
Ég skrapp til köben um síðustu helgi eins og margir aðrir íslendingar. Þar var allt komið í jólafíling. Allir staðir og allt skreytt með jólaskrauti. Tala nú ekki um hið frábæra og ótrúlega jólatívoli, jólaglöggið og æpleskiver. En það yndislega við þetta var að koma heim á sunnudag og allt orðið skreytt hér í Borgarnesi. Fyrirtækin tóku sig saman og skreyttu þessa helgi og mér finnst þetta alveg frábært. Og það voru líka komin ljós á einhver einkahús. Þannig nú er spurning um að gramsa eftir jóladótinu og skella seríunum upp um næstu helgi. Hafið það gott um verðandi aðventu. Jólakveðja, Kristín.
»
01.11.2007 15:43:08 / gaggo
Er ekki allt komið á fullt hjá ykkur með jólin??? Ég var stödd í rúmfatalagerinum 10 október og þá snarstoppaði ég við einn rekkan því það var komið jóladót. Og nú 1. nóvember streymdu inn bæklingar með hugmyndum um jólagjafir og föt á krakkana. En allur varinn er góður því dagarnir eru svo fljótir að líða, vikurnar og jafnvel mánuðirnir og því ekki seinna vænna en að drífa sig af stað og slappa svo bara af í desember þegar allir verða á fulli. Ég segi því nú ef ég skyldi ekki hafa tíma í des.....GLEÐILEG JÓL KÆRU VINIR.  Kristín jólastelpa.
»
20.10.2007 01:13:41 / gaggo
Já það er komin ein lítil stelpa hjá Lilju Sif og Munda. Hún fæddist þann 17 okt, var 12 merkur og 48 sm. Þetta er 4 stelpan þeirra og því má með sanni segja að Mundi lifi í kvennaveldi. Eins gott að hann kunni að meta það  hehehe. Innilega til hamngju elsku stórfjölskylda. Njótið ykkar vel. Kv. Kristín.
»
03.10.2007 17:29:18 / gaggo
Varð nú bara svona til gamans að benda ykkur á að núna um helgina gæti verið tími til að rifja upp gamla takta í góðum dansskóm og skella sér á ball með VINUM VORS OG BLÓMA OG LAND OG SONUM. Verst er að þetta frábæra ball er að það er staðsett á því bölvans plássi Akranesi hehehe verð að halda upp gamla rígnum svona í tilefni gamalla minninga og svoleiðis. Sjáumst kannski hress og kát og rifjum upp góða tíma. KV. Kristín danstryllta.
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|